Landsbankinn hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

June 08, 2021

Landsbankinn lauk í dag útboði sértryggðra skuldabréfa þar sem einn flokkur var boðinn til sölu.

Fimm tilboð að fjárhæð 1.060 m. kr. að nafnverði barst í flokkinn LBANK CB 25 á ávöxtunarkröfunni 3,60%-3,67%. Tilboðum að fjárhæð 500 m.kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 3,61% Heildarstærð flokksins verður 20.740 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 15. júní 2021. Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans. Lánshæfiseinkunn sértryggðra skuldabréfa Landsbankans er A- með stöðugum horfum samkvæmt mati S&P.

Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref.

  • Issue by:Landsbankinn hf.
  • Web:http://
  • About Viv-Media|Free Add URL|Submit Press Release|Submit How To|SiteMap|Advertise with Us|Help|Contact Viv-Media |China Viv-Media
  • Copyright© 2010-2020 viv-media.com Corporation.
    Use of this web constitutes acceptance of Terms of Service and Privacy Policy. All rights reserved.  Poetry Online :Ancient Chinese Poetry