Eik fasteignafélag hf.: Stækkun á skuldabréfaflokknum EIK 100327
May 21, 2021 - Eik fasteignafélag hf. hefur nú lokið stækkun á skuldabréfaflokknum EIK 100327. Skuldabréfin eru með lokagjalddaga þann 10. mars 2027 og bera fasta 1,445% verðtryggða vexti.
Seld voru skuldabréf að nafnverði 800 milljónir króna á ávöxtunarkröfunni 1,25%. Heildarstærð flokksins verður því í kjölfar stækkunarinnar 3.000 milljónir króna sem er hámarksstærð flokksins..
Stefnt er að uppgjöri viðskiptanna þann 27. maí næstkomandi og verður óskað eftir því að bréfin verði tekin til viðskipta í framhaldinu.
Íslandsbanki hafði umsjón með viðskiptunum og stækkun skuldabréfaflokksins.
Nánari upplýsingar veitir:
Lýður Heiðar Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, lydur@eik.is, s: 590-2209 / 820-8980